Núna áðan komst Dr. Doktor áfram í úrslit í Fylleríi! Undanúrslitin voru vægast sagt mjög spennandi þar sem liðin voru jöfn eftir keppnina og eftir framlenginguna! En, við höfðum það á Grímsvötnum og svo er bara að standa sig vel á morgun:)
Mikið ótrúlega er ég orðin pirruð á John Coles. Eftir morgundaginn vil ég ekki heyra hann nefndan! En þangað til væri mjög gott ef þið gætuð sagt mér e-ð um hann! Ég er að rembast við að klára ritgerðina mína í sögu, um ferðabók hans frá 1882. Þegar ég var komin með inngang um daginn bilaði tölvan. Hún var biluð lengur en ég reiknaði með, er reyndar enn biluð, svo ég gat ekkert gert neitt fyrr en í gær þegar ég fékk nýja tölvu! Ekki bara það, heldur á þetta ekki að vera kjörbókarritgerð, þetta á að vera heimildaritgerð, en hvergi nokkurs staðar er karlinn nefndur á nafn! Fann ekkert á netinu og hann var bara einu sinni nefndur, í myndatexta, í bók eftir Sumarliða e-ð... Ég er að verða brjáluð!
Jæja, ég ætla samt að halda áfram og klára þetta, verð örugglega fram á nótt!
miðvikudagur
Dr. Doktor
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|